20september
14september
Rigning
Er ekki verið að grínast með þessa rigningu hérna á þessu blessaða landi. Ég hljóp neðst af skólavörðustígnum og inn á sólon og við erum að tala um að ég varð alveg hundblaut takk pent. Þetta er alveg veðrið til að hanga inni með góða spólu og fullt af nammi en maður verðu víst að læra einhver slatta til að reyna að ná einhverju af því sem ég er búin að missa af þessa vikuna vegna veikinda. Svo á ég eftir að finna mér einhvern grímubúning fyrir búningapartýið hjá Elísabetu sem er á morgun og ég er alveg tóm á hvað ég ætti að fara í, en það hlýtur að reddast. Hlakka alveg sjúklega til að fara, það verður sjúkt fjör hjá okkur jey...Við auður kíktum svo aðeins á Pravda í gær til að horfa á magna og var alveg pakkað af liði og stórkostleg frammistaða hjá stráknum okkar, Til hamingju Magni.....En ætli ég láti þetta ekki duga í bili og fari að læra í hausinn á mér, læt ykkur vita á morgun hvaða búningur verður fyrir valinu:)
13september
Er alveg að mygla
Við erum að tala um það að ég er búin að vera lasin og er gjörsamlega að rotna, ekki alveg það skemmtilegasta sem maður gerir. Er búin að vera heima síðan á mánudaginn, leiðist alveg sjúklega. Er að reyna að halda í við skólann svo maður verði ekki langt á eftir en það gengur svona lalala... Ég fór semsagt ekki í prófið á Þriðjudaginn og er ekki alveg búin með skýrsluna en klára að fínpússa hana á eftir. Ég reyndar svindlaði aðeins í gærkveldi og fór aðeins út, fór niður á Pravda með Auði og Kollu að horfa á Magnavökuna og stóð kappinn sig alveg þokkalega bara, fékk reyndar ekkert sérstaka dóma en kláraði dæmið. Svo kemur í ljós hvernig þetta fer allt í kvöld þegar úrslitin verða tilkynnt. Ég spái því að Lukas vinni þetta, er búin að halda það frá því að þetta bryjaði, Toby verður í öðru og svo er spurning með Dilönu og Magna. Held samt með Toby, hann er lang flottastur að mínu mati, gerir stelpurnar alveg brjálaðar í kringum sig. Vona að hann vinni og Magni taki annað sætið en þetta kemur allt í ljós í kvöld. En ætli maður láti þetta ekki duga í bili og haldi áfram að læra c u :)08september
Skýrslugerð og próf
Þetta verður nú svei mér skemmtileg helgi. Þarf semsagt að gera skýrslu í náttúrufræði og læra eins og brjálæðingur fyrir próf í lollinu. Þannig að það verður lítið annað gert þessa helgina, ætla reyndar að fara á hugleiðslunámskeið með Bóbó og opnun á verkunum hans Anna uppá Hverfisgötu, nánar tiltekið í Gel. Vona bara að ég komist að í hugleiðsluna, þar sem gæti verið orðið fullt, þarf bara að skoða það. Ég á einn tíma eftir í skólanum í dag og þegar hann er búinn þá fer ég í það að ná í nýju tölvuna mína og prentarann jey, get varla beðið, það verður æði að vera komin með nýtt dótarý. Þá þarf ég ekki lengur að nota afsökunina að talvan hafi hrunið eins og var mjög algengt síðustu önn, kennararnir alveg hættir að trúa mér og héldu bara að ég væri að svíkjast undan. En ætli ég láti þetta ekki duga í bili og drífi mig í skólann, í loll tíma mér til mikillar ánægju. En ég segi bara góða helgi.07september
Magni kominn í úrslit
Þá er Borgfirðingurinn kominn í úrslitin sem er snilldin ein. Hann er alveg búinn að sýna og sanna að hann kann þetta. En snúum okkur að hinum Borgfirðingnum, þ.e.a.s. mér:) Allt gott að frétta, nóg að gera í skólanum. Buið að henda á okkur prófi í lollinu á Þriðjudaginn, reyndar annað prófið en ég missti af því fyrra þar sem ég var fyri austan í sveitinni meira að segja á Borgarfirði hehe. En ég tek þetta próf bara með trompi, vonum það allaveg:/ Það verður stuttur dagur í skólanum á morgun vegna busunar, bara kenndir 2 fyrstu tímarnir, voða nice. En maður fer þá bara í það að læra meira í staðinn. En ætli ég láti þetta ekki duga í þetta skiptið og minni ykkur á að kvitta í gestabókina. Góða nótt.04september
Komin tími á smá blogg eða hvað?
Góðan og blessaðan:)Allt gott að frétta af stelpunni. Mikið búið að vera að gera hjá mér síðustu daga.
Á Þriðjudaginn síðasta var kistlagningin upp í fossvogskirkju, fór svo austur til gömlu á miðvikudagskvöldið á á Borgarfjörð í jarðarförina á Fimmtudaginn, þetta var allt voða fallegt. Við gistum svo hjá Kalla og Möggu vinafólki gömlu hjónanna og svo fór ég í flug um hádegi á Föstudeginum. Svo kíkti ég á Moniku kruse á Nasa um kvöldið með liðinu og var bara alveg þokkalegasta stemming. Laugardagurinn var svo tekin rólega, legið upp í sófa og étið og glápt, vða kósý:) Í gær fór ég svo á sólon um 14 leytið til að læra, Ásta Særún kom svo um 18 leytið til að veita mér félagsskap. En uppúr 20 þá fórum við í heimsókn til Möggu móðursystur Ástu og sátum þar til miðnættis, voða notó og kósý:) Svo fór ég bara heim í háttinn og vaknaði eldhress í morgun tilbúin að fara í tíma kl 10:35, Sjúkdómafræði, var búin að hringja og allt til að tjékka á því hvort að það væri tími, af því að kennarinn sem kennir það fékk hjartaáfall í síðustu viku, hún sagði mér að það yrði forfallarkennari en svo lét bara engin sjá sig þannig að ég fór í búðina, keypti mér að snæða og kom heim og hér sit ég og blogga. Þannig að núna hef ég ekki meira að segja nema að ég á að mæta í 1 tíma 14:15 og svo fer maður í lærdóminn, en læt þetta duga í bili og segi bæjó:)
Kvittið svo endilega í gestabókina takk:)
28ágúst
Hellú
Góðann og blessaðann daginn, það er búið að vera nóg að gera hjá stelpunni. Snúast og klára að kaupa það sem vantaði fyrir skólann. Mamma og pabbi voru hjá mér þar til á föstudaginn en þá keyrðu þau austur í sveitina. Ég fór út að borða með Guðjóni á Föstudagskvöldið og svo sátum við á sólon í þónokkurn tíma. Rosa fínt, Viddi kíkti við hjá okkur og svona. En svo varstefnan tekin á Brodway þar sem var klúbbakvöld og Gabriel og Dresden þeyttu skífum og var bara svona líka rosa fjör í liðinu. Ég svaf svo laugardaginn nánast allann eða lá í leti hehehe..... Ég kíkti svo á Auði mína til að setja smá andlit á stelpuna svo hún yrði nú sæt og fín í afmælinu og kíkti svo á Magga og svo aðeins í bæinn, á nýja staðinn sem heitir barinn, rosa flottur staður. Niðurstaða: Þokkalegasta helgi. En nú var stelpan semsagt að koma heim úr plokkun og litun og er svo að fara að læra núna. Ætli ég láti þetta ekki gott heita í þetta sinn og segi bara c u :)24ágúst
Skólinn byrjaður
Jæja þá er skólinn byrjaður og allt sett á fullt, hann byrjaði á þriðjudaginn síðasta og lýst stelpunni svona þokkalega á þeta allt saman. Er í 20 einingum ca og verður því bara alveg nóg að gera hjá mér í vetur. Ætla bara að hafa þetta stutt í þetta skiptið og drífa mig í að kaupa bækurnar sem vantar í skólann. Læt heyra í mér betur við tækifæri, bæjó:)22ágúst
Hvíl í friði elsku besta amma mín
Elsku besta amma mín
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka,
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna,
Guð þerri tregatárin stríð.
Ljós þitt mun lýsa mér um ókomna tíð.
Þín ömmustelpa
Ásdis Fjóla
21ágúst